|

Wednesday, July 20, 2005



Helgi Már í aðhald!
40 staup og stórtónleikar, of mikið skemmtanaálag á Körfuboltakappanum!
"Ég er orðinn ruglaður!" Sagði Helgi meðan að fréttaritari hlaupriddarans og blaðamaður Hér og Nú ræddu við hann í gærkveldi. Helgi er búinn að vera iðinn við kolann í sumar í skemmtanalífinu, atvinnulífinu og við stífar æfingar og eitthvað er þetta farið að setja strik í reikninginn. Því að eftir seinustu helgi þar sem hann var mikið úti að skemmta sér og í þokkabót að bera út morgunblaðið, en Helgi leggur á sig mikla vinnu og erfiði til að geta stundað körfuknattleik á daginn og vinnur því við blaðburð á nóttinni og um helgar. Þetta er farið að trufla svefn hjá honum og þeir sem hann þekkja vita ekki hver þessi maður er. "Ég meina Helgi hefur alltaf verið metnaðargjarn í flestu sem hann tekur fyrir sér og þá á ég líka við skemmtanalíf og djamm, en núna lýst mér ekki á blikuna" sagði Jón Arnór Stefánsson í stuttu spjalli við Riddarann. Helgi segist kanski aðeins hafa farið yfir strikið seinustu helgi. "Ég meina ég hélt ég væri fastur í köngulóarvef, rauk upp og lét öllum illum látum. Síðan áttaði ég mig á því að ég var með óráði kófsveittur og rúmfötin út um allt". "Þetta gerist ef maður tekur 40 staup, er mikið í partýum, að vinna og að æfa á fullu. En nú er það bara aðhald." Sagði Helgi sjálfur þegar hann ræddi við okkur í gærkveldi. Við vonum að Helgi haldi að sér og nái fullum bata.


Tvíhleypa færslunnar
Stóri Maggi og Big Ted
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com |

Saturday, July 16, 2005


Prestsonur handtekinn á Reykjanesbraut


























,ekkert reyndist staðfesta grun lögreglunar um Byssueign Plötusnúðsins og Rapparanna. Dæmi um fordóma og ógeðfelld vinubrögð lögreglumanna?


-Markús Hjaltason 23 ára nýútskrifaður hljóðtæknir var á leið heim eftir að hafa sótt vin sinn á keflavíkurflugvelli þegar hann var stöðvaður á harkalegna hátt við Reykjanesbraut. Markús, Addi og Diddi voru samkvæmt áreiðanlegum heimildum handjárnðir og negldir á húddið og sakaðir um að hafa byssu meðferðis í bílnum. Stuttu seinna komu fleiri bílar og hundur fengin til að leita og því greinilegt að þeir höfðu félagana grunaða um fleiri hluti. Allir eru þeir og hafa verið að vinna í hip hop geiranum bæði erlendis og heima. Markús og Addi lærðu saman hljóðtækni í Amsterdam og Addi og Diddi eru saman í hljómsveitinni Forgotten Lores sem Markús er mjög tengdur og hefur tekið upp lög fyrir. Samkvæmt heimildum Riddarans var þetta allt mjög skipulagt og hluti af aðgerðum lögreglunnar gegn hip hop menningunni og Snoop Dogg en Forgotten Lores eru einmitt að hita upp fyrir Snoop á Sunnudaginn. Talið er að þetta sé aðeins byrjunin á hrottafenginni herferð yfirvalda gegn Hip Hoppi. Lögreglan á að hafa keyrt mennina niður í Hafnarfjörð og leitað á þeim og í pirringi sínum kallað þá ýmsum nöfnum. Logreglan bað um að þeir fækkuðu fötum og var gerð ýtarleg leit. Björgvin Halldór Björnsson Lögspekingur Riddaranns hafði þetta um málið að segja" Þarna hafa Svínin farið yfir strikið og er verið að athuga möguleika á aðgerðum gegn yfirvöldum". En orðrómur götunnar er sá að Egill Helgasons krullfeiti hafi átt sinn þátt í þessu með því að draga upp slæma mynd af hip hoppi og reynt að tengja forgotten lores við byssueignir og kvennfyrirlitningu þegar þeir komu fram í síðustuviku í Ísland í Dag á stöð 2 en Egill er nýbyrjaður að stjórna þeim þætti.

Egill vildi ekki svara spurningum Riddaranns þegar blaðamenn höfðu samband við hann klukkan 4:30 seinustu nótt.
"Svínin svífast einskis og eru alls staðar eins LA, NYC, TOKYO, Amsterdam, Laugarnes, Raykjavík, Keflavík. Fordómar frá fávitum og ofbeldi gegn Saklausu fólki" sagði Markús, Prestsonurinn í stuttu spjalli við Riddarann og Öskraði F*** the Police um leið og lögreglu bíll keyrði fram hjá.

Já það má segj að í Reykjavík kraumi ýmislegt undir niðri og eitt af því virðist vera valdafíkn, ofbeldifíkn og ótrúlegir fordómar hjá laganna vörðum í garð Hip Hops og þeirra sem tala, lifa og anda Hip Hop. Riddarainn mun kafa djúpt í þessi mál.
Punktur

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com